Verklagsreglur Fræðslusjóðs FOSS
- Fræðslusjóður starfar samkvæmt stefnu og verksviði FOSS.
- Lög félagsins 11. grein liður 7, „kosnir 2 fulltrúar í Fræðslusjóð FOSS til tveggja ára".
- Einn fulltrúi er kosinn af stjórn sem gegnir jafnframt formennsku í sjóðnum. Starfsmaður FOSS er einnig starfsmaður Fræðslusjóðs.
- Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld launagreiðanda.
- Sjóðsfélagar eru allir félagsmenn í FOSS.
- Markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn til náms svo þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar í starfi.
- vSömu reglur gilda um Vísindasjóð og Fræðslusjóð.
Á sviði fræðslu- og upplýsingamála leggur FOSS áherslu á:
- Að skipuleggja fræðslu stjórnar- og trúnaðarmanna.
Úthlutunarreglur
1.gr. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum til skrifstofu félagsins. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni, hjá trúnaðarmönnum og eru einnig á heimasíðu FOSS hægt er að sækja um styrk rafrænt á netinu foss.bsrb.is.
2.gr. Úthlutun úr sjóðnum fer fram mánaðarlega yfir vetrarmánuðina en ekki eru haldnir fundir á tímabilinu júní, júli og ágúst.
3.gr. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna. Með umsókn skal senda greinargóða lýsingu á náminu og upplýsingar um hvernig námið nýtist í starfi. Umsækjandi sem skilar inn ófullkomnum upplýsingum eða röngum ber áhættuna af því að umfjöllun tefjist eða að umsókninni verði hafnað.
4.gr. Kostnaður umsækjanda við nám, námskeið, námsstefnur, ráðstefnur eða sambærilega þekkingaröflun sem tengja má starfi hans og flokka má undir starfs- eða endurmenntun er styrkhæf.
5.gr. Hámarksupphæð styrks úr Fræðslusjóði er kr. 40.000.-á ári eða kr. 80.000.- á hverju tveggja ára tímabili. Sumarafleysingfólk þarf að hafa verið í 9 mánuði í starfi þó ekki samfellt til að fá úthlutun. Þeim sem greitt hefur verið af að lágmarki í 6. mánuði til sjóðsins geta sótt um styrk . Að öðru leyti fá umsækjendur úthlutað eftir starfshlutfalli. Úr Vísindasjóði er greitt að hámarki kr. 120.000.- árlega eða kr. 240.000.- á hverju tveggja ár tímaili.
Viðbót við gr. 5. Ef sótt er um styrk í Fræðslusjóð vegna námsferða innan- eða utanlands þarf að koma bréf frá viðkomandi stofnun um tilgang og markmið ferðar auk nafnalista árituðum af yfirmanni . Auk þess þarf að koma staðfesting frá þeirri stofnun sem heimsótt er, afrit af farseðli eða hliðstæðar kvittanir vegna útlagðs ferðakostnaðar. Styrkurinn er eingöngu ætlaður þeim sem fá ekki styrk úr Mannauðssjóði eða sambærilegum sjóðum. Styrkurinn er kr. 60.000.- á tveggja ára tímabili eða kr. 30.000.- árlega.
6.gr. Greiðslur út sjóðnum fara fram gegn afhendingu frumrits reiknings.
7.gr. Einungis félagsmenn FOSS geta fengið styrk úr sjóðnum. Þeir þurfa að hafa verið félagsmenn í að minnsta kosti 6. mánuði. Heimilt er að telja hvern mánuð eftir það.
8.gr.Umsækjandi þarf að vera í starfi bæði þegar hann sækir um styrk og notar hann, nema styrkurinn varði endurhæfingu þar sem staða umsækjanda hefur verið lögð niður eða umsækjandi veikist eða hafi orðið fyrir slysi.
9.gr. Umsækjandi sem hlotið hefur styrk úr sjóðnum á s.l. 2 árum getur að hámarki hlotið styrk sem nemur ónotuðu hlutfalli af hámarksupphæð sbr. 5.gr.
10.gr. Ef styrksloforðs er ekki vitjað innan 6. mánaða frá afgreiðslu umsóknar fellur styrkurinn niður.
11.gr. Stjórn sjóðsins er aðeins heimilt að samþykkja umsóknir vegna starfsnáms á yfirstandandi reikingsári hverju sinni.
12.gr. Hægt er að sækja um styrk vegna náms sem ekki tengist starfi félagsmanns og fer sú úthlutun fram í desember ár hvert ef afgangur er í sjóðnum.
13.gr. Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksárið. Reikningar skulu endurskoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum FOSS. Skrifstofa FOSS sér um bókhald, innheimtir tekjur hans og innir af hendi greiðslur úr sjóðnum..
14.gr. Á aðalfundi FOSS skal stjórn sjóðsins gera grein fyrir störfum sínum.
Skráning á póstlista
Leit
Toppmynd
Upplýsingar
Opnunartími
Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00.
Lokað á föstudögum.







