Lög félagsins
Gilda frá október 2005
Nafn félags og hlutverk
1. gr.
Nafn félagsins er Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, skammstafað FOSS, varnarþing þess er á Selfossi.
2. gr.
Félagið er stéttarfélag starfsmanna sveitarfélaga á Suðurlandi og annarra opinberra starfsmanna er taka laun samkvæmt kjarasamningi FOSS.
Tilgangur félagsins er m.a.:
a) að fara með fyrirsvar félagsmanna við gerð kjarasamninga og aðrar ákvarðanir fyrir hönd félagsmanna samkvæmt lögum og reglugerðum er þá varða.
b) að gæta hagsmuna félagsmanna í öllu því sem varðar laun, önnur kjör og starfsréttindi hvers konar. Það kemur að öllu leyti opinberlega fram fyrir hönd félagsmanna.
c) að vinna að samstöðu félagsmanna.
d) að stuðla að auknu samstarfi opinberra starfsmanna og samvinnu samtaka launafólks.
Félagið tekur ekki afstöðu til stefnu stjórnmálaflokka.
Félagsaðild
3. gr.
Rétt til aðildar eiga allir starfsmenn sveitarfélaga á Suðurlandi og stofnana þeirra, svo og þeir ríkisstarfsmenn sem til þess hafa rétt samkvæmt lögum ef þeir óska þess. Stjórninni er þó heimilt að veita undanþágu frá þessari grein.
4. gr.
Hver sá félagi er segir upp starfi og hættir að þiggja laun samkvæmt kjarasamningum FOSS missir öll félagsréttindi frá sama tíma. Félagsmaður sem lætur af starfi á aldurstakmörkum eða vegna veikinda og hefur unnið sér rétt til eftirlauna eða örorkubóta, heldur öllum félagsréttindum en skal vera gjaldfrjáls. Félagar geta óskað þess að stjórn félagsins hafi afskipti af ráðningarkjörum, starfskjörum, eftirlaunum, brottvikningum og öðru því sem máli skiptir í samræmi við tilgang félagsins. Verði félagsmenn atvinnulausir, skulu þeir halda félagsaðild og þeim réttindum sem er á færi félagsins að veita á meðan þeir eru atvinnulausir og er sannanlega ekki með félagsaðild að öðru stéttarfélagi. Atvinnulausir greiði félagsgjald en heimilt er að fella það niður.
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg tilkynning til stjórnar og öðlast hún gildi þegar liðnir eru 3 mánuðir frá því að tilkynning berst til stjórnar félagsins. Úrsögn öðlast þó ekki gildi eftir að ákvörðun um verkfall hefur verið tekin og meðan á verkfalli stendur, heldur frestast gildistaka hennar þar til verkfalli lýkur.
5. gr.
Allir félagar eru skyldir að hlýða lögum félagsins. Þyki sannað að félagsmaður hafi framið alvarlegt brot á lögum þessum eða vísvitandi valdi félaginu tjóni, getur aðalfundur vikið honum úr félaginu en til þess þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Félagsmönnum er skylt að gefa stjórn félagsins allar nauðsynlega upplýsingar í samræmi við tilgang félagsins.
Stjórn og stjórnarstörf
6. gr.
Stjórn félagsins skipi 7 menn, kosnir til tveggja ára í senn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur. Formaður skal kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu ef fleiri en einn eru í kjöri enda hafi tillaga um formann borist uppstillingarnefnd 30 dögum fyrir aðalfund. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir í einu lagi á aðalfundi. Stjórnin skipti að öðru leyti sjálf með sér verkum.
Kjörstjórn skal senda félagsmönnum kjörgögn. Við frágang kjörgagna skal hafa hliðsjón af því sem tíðkast við utankjörfundarkosningu til Alþingis. Kosning skal standa yfir í a.m.k. 15 daga og skal lokið sólarhring fyrir aðalfund. Atkvæði sem berast kjörstjórn eftir þann tíma, skulu ógild.
Nöfnum frambjóðenda skal raða í stafrófsröð: Tilgreina skal vinnustað frambjóðenda og starfsheiti.
Stjórn félagsins skal stuðla að því að haldnir séu almennir félagsfundir á félagssvæðinu þar sem frambjóðendur kynna stefnumál sín. Þessa fundi skal halda áður en kjörgögn eru send út.
7. gr.
Formaður er aðalforsvarsmaður félagsins. Hann kallar saman stjórnarfundi og stjórnar þeim, auglýsir félagsfundi og skipar fundarstjóra. Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum hans. Ritari heldur gerðarbók og færir í hana ágrip af því sem gerist á stjórnar- og félagsfundum. Allt handbært fé skal geymt í banka eða á annan hátt sem stjórn ákveður. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða ársreikninga á aðalfundi. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar er mættur. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum.
8. gr.
Stjórninni er heimilt að leita skriflegrar atkvæðagreiðslu allra félagsmanna um þau mál sem þykja mikilsvarðandi fyrir félagið. Á undan slíkri atkvæðagreiðslu skal halda almennan félagsfund og málið skýrt fyrir félagsmönnum.
Fundir
9. gr.
Boða skal til félagsfundar svo oft sem stjórnin telur þörf á. Þá getur 1/3 hluti félagsmanna skriflega krafist þess að almennur félagsfundur verði haldinn og skal þá tilgreina fundarefni. Er þá formanni skylt að boða til fundar innan 7 daga frá því að honum barst krafan.
10. gr.
Félagsfundi skal boða með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara. Jafnframt skal tilgreina fundarefni í fundarboði. Aðalfundur jafnt og almennir félagsfundir eru lögmætir sé til þeirra boðað skv. fyrirmælum þessarar greinar. Takist ekki að ljúka fundarstörfum á einum fundi, skal boða til framhaldsfundar svo fljótt sem kostur er.
11. gr.
Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Skal hann haldinn eigi síðar en 31. maí ár hvert. Sérstök verkefni aðalfundar eru:
1. Formaður flytur skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Lagðir eru fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins.
3. Skýrsla stjórnkjörinna nefnda.
4. Tillögur til lagabreytinga enda hafi þær borist stjórninni fyrir lok marsmánaðar.
5. Tekin ákvörðun um árgjöld félagsins.
6. Kosning stjórnar skv. 6. gr.
7. Kosnir 2 fulltrúar í Fræðslusjóð FOSS til tveggja ára.
8. Kosin kjörnefnd þriggja manna til tveggja ára.
9. Kosnir 2 skoðunarmenn félagsreikninga og 1 til vara.
10. Kosning fulltrúa á þing BSRB.
11. Kosning þriggja manna í orlofsnefnd til tveggja ára. Stjórn félagsins er ekki
kjörgeng í nefndina
12. Önnur mál sem fram koma á fundinum.
12. gr.
Fundum skal stjórnað skv. almennum fundarsköpum. Við afgreiðslu almennra mála nægir einfaldur meirihluti. Við breytingar á lögum og reglum félagsins, en þær má aðeins gera á aðalfundi, þarf 3/4 hluta greiddra atkvæða fundarmanna til þess að lögmætar séu. Ef fleiri en einn fá sama atkvæðamagn við kosningu, skal hlutkesti ráða úrslitum.
Fjármál
13. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Til þess að standa straum af kostnaði við starfsemi félagsins, greiða félagsmenn árgjald til þess skv. ákvörðun aðalfundar og skal miðast við hundraðshluta allra launa. Árgjald til BSRB skv. ákvörðun bandalagsþings er innifalið í félagsgjaldi.
Trúnaðarmenn
14. gr.
Á hverjum vinnustað þar sem starfa 5 eða fleiri félagsmenn, skal í októbermánuði fara fram val trúnaðarmanns er síðan skal tilkynnt félagsstjórn. Velja má annan til vara, sbr. lög nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Berist eigi tilkynning um val fyrir 1. desember, skal félagsstjórn skipa trúnaðarmann án tilnefningar og tilkynna það félögum á vinnustaðnum.
Félagsstjórn setur trúnaðarmönnum starfsreglur. Trúnaðarmenn sem kjörnir eru eða skipaðir skv. framanskráðu, mynda ásamt stjórn og varastjórn trúnaðarmannaráð.
Slit félagsins
15. gr.
Komi fram tillaga um að leysa félagið upp, verður hún eigi tekin til greina nema hún sé studd hið minnsta af 1/4 hluta félagsmanna. Skal þá höfð um hana allsherjaratkvæðagreiðsla í félaginu.
Tillagan telst því aðeins samþykkt að hún hljóti 2/3 hluta greiddra atkvæða. Verði félagið leyst upp, ber aðalfundi að ráðstafa eignum þess og skjölum til varðveislu.
Skráning á póstlista
Slóđin ţín:
Lög félagsinsLeit
Toppmynd
Upplýsingar
Opnunartími
Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00.
Lokað á föstudögum.







