Fréttir
21.5.2012
Hagfrćđingur BSRB um skýrslu vinnuhóps um nýtt húsnćđisbótakerfi
Vinnuhópur á vegum velferðarráðherra leggur til að tekið verði upp nýtt og gjörbreytt húsnæðisbótakerfi sem tryggir öllum sama rétt til fjárhagsstuðnings hins opinbera.„Með tillögum hópsins næst það fram sem BSRB hefur verið að berjast fyrir undanfarin ár - að jafna bótagreiðslur á milli ólíkra búsetuforma," segir Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB, um nýja skýrslu vinnuhóps um húsnæðisbætur sem kynnt var í dag. Sjá nánarhttp://www.bsrb.is/um-bsrb/frettir/nr/2177/
4.5.2012
Ađalfundur FOSS
Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi heldur 39.aðalfund sinn fimmtudaginn 10 ma
í 2012 á Hótel Selfoss og hefst hann kl. 19:00
Dagskrá.
1.Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
3. Happdrætti.
Veitingar verða bornar fram meðan aðalfundurinn stendur yfir. Þegar fundi er lokið mun Bjarni töframaður slá á létta strengi.
3.5.2012
orlofsvefurinn
Athugið orlofsvefurinn opnar kl. 12:00 (í hádeginu) 3 maí.
30.4.2012
1. maí hátíđarhöldin
Selfoss
Safnast saman við Tryggvatorg og lagt af stað klukkan 11.00 við undirleik Lúðrasveitar Selfoss.
Félagar í hestamannafélaginu Sleipni fara fyrir göngunni. Stórglæsileg hátíðardagskrá fer fram utandyra.
Fundarstjóri er Stefanía Geirsdóttir frá Foss.
Ræðumenn dagsins eru Guðmundur Gunnarsson rafiðnaðarmaður og Guðrún Jónsdóttir frá Félagi eldri borgara á Selfossi.
Lína langsokkur skemmtir og hljómsveitin Blár Ópal flytur nokkur lög. Félagar í Bifreiðaklúbbi Selfoss sýna eðalvagna á svæðinu. Stéttarfélögin bjóða börnum andlitsmálningu og stuttan reiðtúr sem Hestamannafélagið Sleipnir sér um.
Í tilefni dagsins bjóða stéttarfélögin gestum upp á hátíðarkaffi.
26.4.2012
Kjara - og viđhorfskönnun
Kjara- og viðhorfskönnun BSRB
25.4.2012
Við minnum félagsmenn BSRB á að kjara- og viðhorfskönnunin sem Capacent Gallup er að framkvæma fyrir bandalagið er enn opin. Nú eru allra síðustu forvöð að svara könnuninni og BSRB hvetur alla félagsmenn eindregið til að taka þátt í könnuninni enda skapar könnunin mikilvægan grunn til samanburðar og rannsókna á launaþróun meðal félagsmanna BSRB.
Könnunin nýtist launamönnum, launamannahreyfingum og atvinnurekendum bæði til viðmiðunar á launum, þróun þeirra sem og til jöfnunar. Þá verða niðurstöður hennar jafnframt mikilvægt verkfæri í baráttunni gegn launamuni kynjanna og upplýsingarnar má nota til viðmiðunar fyrir félagsmenn í launaviðtölum sínum. Það er því mjög mikilvægt að sem flestir taki þátt til að niðurstöðurnar nýtist félagsmönnum sem best í baráttunni um betri kaup og kjör.
18.4.2012
Vestmannaeyjar og Spánn
Búið er að opna fyrir útleigu á íbúðinni í Vestmannaeyjum.
Tvö tímabil eru ennþá laus á Spáni, það er 21. ágúst - 4. sept og 4. - 18. september
11.4.2012
Formađur BSRB í fréttum Rúv: Ekki nóg ađ hćkka bćturnar
„Við verðum að tryggja það að fólk sem er með meðaltekjur og þar fyrir neðan að það lendi ekki í skerðingu, það fái fullar barnabætur," sagði Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB í viðtali við Fréttastofu Rúv í gærkvöldi. Unnið er að nýrri skýrslu um stöðu heimilanna fyrir stjórnvöld og leggur BSRB mikla áherslu á að ráðist verði í úrbætur á barnabóta- og vaxtabótakerfunum. sjá nánar »
11.4.2012
Frćđslusjóđur
Fundur var haldinn í Fræðslusjóði mánudaginn 2. apríl.
Borist höfðu 6 umsóknir fimm fengu afgreiðslu en ein umsóknin fór í bið þar sem hún tengist ekki vinnu umsækjenda. Hún bíður því afgreiðslu desemberfundar.
Stjórn Fræðslusjóðs
28.3.2012
Gjafabréf Icelandair.
Gjafabréfin hjá Icelandair eru komin inn á orlofsvefinn.
21.3.2012
Orlofshús um páska
Félagsmenn athugið enn er laust um páskanna í Vestmannaeyjum Munaðarnesi bæði húsin og í Reykjavík.
Skráning á póstlista
Leit
Toppmynd
Upplýsingar
Opnunartími
Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00.
Lokað á föstudögum.







