Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

24.8.2010

Launafólk ber byrðarnar

Hverju má þakka þennan árangur? Vissulega er hægt að tína margt til, en ég held að allir geti verið sammála um að fyrst og síðast sé það launafólk í landinu sem hefur borið byrðarnar. Ofan á öll persónuleg áföll hefur kaupmáttur þess rýrnað. Samið var um hækkun lágmarkstaxta í tengslum við stöðugleikasáttmálann, gegn efndum ríkisstjórnarinnar á mikilvægum sviðum, sem ekki hafa allar gengið eftir.

Forsendur Seðlabankans, sem birtast í Peningamálum, vekja hins vegar athygli. Þar segir, á síðu 12: „Ekki hafa komið fram nýjar vísbendingar sem benda til aukins launaþrýstings og ekki er gert ráð fyrir að mikill þrýstingur verði við gerð næstu kjarasamninga um að leiðrétta kaupmátt launa." Seðlabankinn er að sönnu ekki ríkisstjórnin, en gjalda verður varhug við því að gengið sé að því sem vísu að launafólk taki á sig endalausar byrðar.

Tvö aðildarfélög BSRB hafa ekki enn náð kjarasamningum og samningar annarra eru lausir í lok nóvember. Þá bíður okkar allra að semja á ný, með hagsmuni félaga okkar og samfélagsins alls að leiðarljósi. Vissulega er okkur þröngur stakkur skorinn, en það hlýtur að koma að því að fólkið í landinu fái að njóta betra ástands í efnahagsmálum.




Spurning

Er skert þjónusta á þínum vinnustað




Hugmyndabanki

Hér geta félagar skráð hugmyndir og tillögur til félagsins.

Skrá hér

Lífeyrissjóður


LSR

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

 

LSS

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga


Merki

 BSRB

BSRB

 Styrktarsjóður BSRB
Styrktarsjóður

Starfsmat   Samflot Vefnám trúnaðarmanna   Framvegis Starfsmennt logo 

Slóðin þín:

Um FOSS » Fréttir

Toppmynd


Upplýsingar

Opnunartími

Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00. 

  Lokað á föstudögum.

sjá nánar


Stjórnborð

Stórt letur Lítið letur