Stjórn FOSS
Leiðarljós
|
<>

Ásbjörn Sigurðsson, formaður as@selfossveitur.is
Ég er fæddur þann 16.október 1955 og er uppalinn og hef búið á Selfossi alla mína tíð. Lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands 1975. Hef unnið hjá Selfossveitum frá 1990 lengst af sem fjármálastjóri. Áður starfaði ég m.a. í Landsbanka Íslands í um 13 ár.
Hef verið í Foss frá 2004. Er giftur Jónbjörgu Kjartansdóttir og eigum við tvo syni
<>
Ég heiti Torfi Þór Friðfinnsson og er fæddur á Sauðárkróki 3.mars 1955 en ólst upp í Varmahlíð í Skagafirði.Ég kom fyrst á vertíð til Hornafjarðar árið 1972 og hef búið hér síðan.Ég stundaði sjómennsku til haustsins 1987 er ég gerðist hafnsögumaður við Hornafjarðarhöfn Aðal áhugamál mín eru kórsöngur, ég hef sungið með karlakórnum Jökli í 21 ár og Samkór Hornafjarðar í 4 ár, einnig hef ég starfað að ýmsum félagsmálum var t.d. formaður Starfsmannafélags Austur-Skaftafellssýslu þar til það var sameinað Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi árið 1997 sem mér var mjög hugleikið og hef setið í stjórn þar síðan ég hef verið í stjórn Styrktarsjóðs BSRB frá stofnun hans.Ég er giftur Ingibjörgu Lúcíu Ragnarsdóttur og eigum við 4 börn og 4 barnabörn.
Torfi Friðfinnsson, gjaldker torfi@eldhorn.is
<>
Ég er fædd 15. janúar 1951, og er því steingeit. Ég er gift Magnúsi Óskarssyni og eigum við 3 uppkomin börn, og 4 barnabörn. Ég lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1969. Við byrjuðum okkar búskap á Selfossi en fluttum hingað í Gnúpverjahrepp árið 1974 og höfum búið hér síðan. Ég hef unnið ýmis störf en hef verið á skrifstofu sveitarfélagsins frá 1995 og séð um bókhald og sem launafulltrúi og hin síðari ár sem skrifstofustjóri.
Ég byrjaði að starfa fyrir FOSS sem trúnaðarmaður en var svo kosin í stjórn FOSS og hef verið ritari stjórnar frá því árið 2008. Ég er jafnframt formaður uppstillingarnefndar FOSS.
Áhugamál mín eru söngur, útivist og samvera í góðra vina hópi.
Þuríður Jónsdóttir,ritari dudda@skeidgnup.is
<>
.
Ég er fædd í byrjun október og er því Vog. En í bók um störnumerkin segir að Vogin sé værukær og gefin fyrir að eiga góða daga. Ég bý í Hveragerði á þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn. Ég vinn sem skólaritari við Grunnskólann í Hveragerði og hef verið þar s.l. 18 ár. Það er fjölbreitt og skemmtilegt starf en er mjög erilsamt og er skrifstofan hjá mér stundum eins og á umferðamiðstöð. Ég byrjaði að starfa fyrir FOSS sem trúnaðarmaður og ég verð að segja það eins og það er þá vissi ég bara ekkert um starfsemi félagsins. Síðar var ég kosin í stjórn FOSS og hef sitið þar í allnokkur ár og er ég jafnfram formaður Fræðslusjóðs.
Pamela Morrison, stjornamaður pamela@hveragerdi.is
<>

Kristín Erna Leifsdóttir stina@hvolsskoli.is
'Eg er vatnsberi fædd á sjálfan valentínusardaginn árið 1962.
Ég er fædd á Hellu 14.maí 1960 og hef búið þar að mestu síðan. Frá 2007 bý ég reyndar á yndislegum stað vestan við Rangá ytri, beint á móti Hellu þorpi og skírðum við húsið okkar Árbyrgi. Ég hef starfað við heilsugæslustöðina á Hellu síðan 1989 og er læknafulltrúi. Við höfum átt mikið samstarf við heilsugæslustöðina á Hvolsvelli alla tíð og sameinuðumst sem Heilsugæsla Rangárþings 1998 og 2004 sameinuðumst við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ég hef verið í FOSS síðan 1989. Ég starfaði í Orlofsnefnd og einnig sem trúnaðarmaður. Ég hef setið í stjórn FOSS frá 2006.
Ég er gift Þóri B Kolbeinssyni heilsugæslulækni og við eigum samtals 5 börn og nú 8 yndisleg barnabörn. Áhugamál mín eru fjölskyldan og vinirnir, síðan hestamennska, ferðalög innanlands sem utan og allt jákvætt og uppbyggilegt.
Skráning á póstlista
Leit
Toppmynd
Upplýsingar
Opnunartími
Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00.
Lokað á föstudögum.







